Tix.is

Um viðburðinn

Efnisval Katlanna er án landamæra. Á tónleikunum verða flutt verk frá ýmsum tímum og stöðum sem öll eiga það sameiginlegt að vera kröftug og tjáningarík. Við stöldrum við í Búlgaríu og kyrjum í anda kvenna þar og í einni svipbrá förum við yfir til Finnlands og endurómum köll og trega systra okkar þar. Einnig verða fluttar nýjar útsetningar eftir kórstýrur, m.a. með Florence and the machine, Kate Bush, Destiny’s child og Massive attack. Kórstýrur eru Hildigunnur Einarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Gestur Katlanna á þessum tónleikum er Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverksleikari.