Tix.is

Um viðburðinn

Listdansskóli Hafnarfjarðar fagnar 25 ára afmæli í ár og heldur því veglega afmælisvorsýningu! Sýningargestum er boðið í ferðalag með nemendum í gegnum tímalínu skólans og fá að upplifa sýningaratriði sem skólinn hefur sett upp á síðustu árum. Sýningin verður fjölbreytt, skemmtileg og spennandi og hentar öllum aldurshópum. Nemendur 5 - 22 ára sýna ballett, djassdans, nútímadans, loftfimleika og leikatriði. Við hlökkum til að taka á móti ykkur á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu!