Hið eina sanna lið Ragnarök, mætir Team Unicorn frá Englandi í epískri baráttu í hjólaskautaati (e. Roller Derby) laugardaginn 27. apríl nk. Látið ykkur ekki vanta á þennan æsispennandi viðburð sem haldinn verður í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi.
Húsið opnar kl.14:30 og flautað verður til leiks kl.15.
Miðar í forsölu fást á tix.is fyrir litlar 1.000 kr. Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn á 1.200 kr. Frítt er fyrir börn 11 ára og yngri.
Áhugafólk um allt sem er skemmtilegt hvatt til að mæta og styðja liðið okkar til sigurs