Sirkussýningin "Áratugur af Sirkus" snýr aftur!
Í tilefni af tíu ára afmæli sirkus á Íslandi var útbúin sérstök hátíðarsýning Sirkus Íslands sem frumsýnd var í fyrra. Færri komust að en vildu og snýr hún því aftur í sirkustjaldið Jökluí Vatnsmýrinni í Reykjavík og á Ísafirði í sumar.
Þessi litríka fjölskyldusýning er uppfull af loftfimleikafólki, trúðum, juggli, akróbatík og alls kyns ótrúlegum uppákomum og svíkur engan - stóran né smáan - um háklassa og töfrandi sirkusupplifun.
Barnamiðar eru fyrir 3-12 ára.
Börn yngri en 3 ára þurfa ekki miða.
Sýningin er rúmur einn og hálfur tími með hléi.