Tix.is

Um viðburðinn

Lögreglukórinn er blandaður kór lögreglumanna af báðum kynjum, sem hefur æft af kappi að undanförnu fyrir kórferð til Stokkhólms nú í vor. Tilefni ferðarinnar er 100 ára afmæli lögreglukórsins í Stokkhólmi og þátttaka í hátíðardagskrá til að fagna þeim tímamótum, ásamt lögreglukórum frá fleiri Norðurlöndum
Lögreglukórinn hefur sett saman skemmtilega dagskrá með lögum úr ýmsum áttum og með margvíslegu ívafi. Lögreglukórinn hlakkar til að eiga þessa stund söngs og samveru með tónleikagestum og vonar að þið hafið gaman af. Um leið vill kórinn þakka öllum styrktaraðilum fyrir veittan stuðning við að fjármagna ferðina.

Stjórnandi Lögreglukórsins er Matthías V. Baldursson
Píanóleikari verður Pálmi Sigurhjartarson