Tix.is

Um viðburðinn

Miðvikudaginn 17. júlí mun píanóleikarinn Mattias Nilsson halda tónleika í Norræna húsinu. Tónleikarnir byrja kl. 21:00.

Mattias Nilsson hefur á undanförnum árum skapað sér nafn sem einn af áhugaverðustu píanóleikurum Svíþjóðar með sinn eigin tónblæ og áslátt. Margir hugsa örugglega ósjálfrátt um Jan Johansson þegar þeir hlusta á tónana sem dansa milli vonar og norrænnar melankólíu en litbrigði Mattias Nilsson teygja sig einnig í aðrar áttir. Í fyrsta sinn gefur Mattias nú íbúum Reykjavíkur tækifæri til að heyra hvers vegna hann hefur fengið ljómandi dóma fyrir tónleika sína bæði í Svíþjóð og um heim allan.

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni.

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja skipti í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta ár kynnum við fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; þjóðlagatónlist, djass, klassík og popp.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Miðasala fer fram á tix.is og í Norræna húsinu.
www.nordichouse.is