Tix.is

  • 19. apríl
  • 20. apríl
  • 21. apríl
Um viðburðinn

Páskar 2019 á Krúsinni

Föstudagurinn 19. apríl
Herra Hnetusmjör og Dj Egill Spegill.
Tími 00:00-04:00
Verð í forsölu 2000
Við hurð 2500 

Herra Hnetusmjör er eitt stærsta nafnið í bransanum í dag. Hann framleiðir sitt eigið hnetusmjör. Herrann mætir í Krúsina í fyrsta skipti og tekur öll sín bestu lög. Með honum á kvöldinu verður plötusnúðurinn Egill Spegill sem getið hefur sér gott orð fyrir að láta fólk dansa upp á borðum.

 

Laugardagurinn 20. Apríl
DJ Margeir
Tími 00:00-03:00
Verð í forsölu 1500
Verð í hurð 1800 

Dj Margeir er einn fremsti dans plötusnúður landsins og hefur verið það um árabil. Hann er eini plötusnúðurinn í heiminum sem spilað hefur á Esjunni. DJ Margeir hefur spilað á mörgum af stærstu dans tónlistarhátíðum víða um heim auk þess að hafa stofnað tónlistarhátíðina Sónar Reykjavík. Margeir fær fólk til að dansa og gleyma sér.

 

Sunnudagurinn 21. Apríl
Babies
Tími: 00-04:00
Verð í forsölu 2500
Verð í hurð 2900 

Babies er skemmtilegasta stuð partý tökulagahljómsveit landsins. Fyrir ári síðan kom hljómsveitin fram á dansleik í Krúsinni sem fer í sögubækurnar sem einn allra hressasti dansleikur fyrr og síðar. Í ár ætlar hljómsveitin að toppa sig og spila besta dansleik allra tíma. Sérstakur gestur á kvöldinu er DJ Gló sem er snillingur og ekki þarf að kynna fyrir nokkrum þeim sem þekkir til Ísafjarðar.