Tix.is

Um viðburðinn

Á glæsilegum upphafstónleikum hátíðarinnar í Eldborg líta þrír risar rússneskra og þýskra tónbókmennta inn á við og hugleiða eftirminnilegar manneskjur og staði – velta fyrir sér hinum dularfulla og ljúfsára hverfulleika tilverunnar. Efnisskráin hefst á hinsta ljóðaflokki Jóhannesar Brahms, Fjórum alvarlegum söngvum, sem var saminn þegar heittelskuð vinkona tónskáldsins, Clara Schumann, lá fyrir dauðanum. Flokkurinn er bæði tregafullur og ægifagur og hæfir vel dökkri en hlýrri rödd hins heimsfræga, austurríska barítónsöngvara Florians Boesch. Dmitri Shostakovichsamdi sitt mikilfenglega Píanótríó nr. 2 í minningu nýlega látins vinar síns, Ivans Sollertinskys, sem staðið hafði með tónskáldinu gegnum þykkt og þunnt – líka ofsóknir sjálfs Stalíns. Það er öllu bjartara yfir lokaverki tónleikanna, Minningu um Flórens, sem Pjotr Tsjækofskí samdi innblásinn af fegurð og andrúmslofti Flórensborgar. Þetta ævintýralega fallega kammerverk hljómar hér í fyrsta sinn á Íslandi í nýrri og frábærri umritun fyrir píanótríó, en það var upphaflega samið sem strengjasextett.

Efnisskrá:

Johannes Brahms                  Vier Ernste Gesänge, op. 121 (1896)
Dmitri Shostakovich              Píanótríó nr. 2 í e-moll, op. 67 (1944)

Hlé

Pjotr Tchaikovsky                  Souvenir de Florence, op. 70 (1890)

Ný útsetning fyrir píanótríó eftir Matan Porat

Listamenn:

Florian Boesch, barítón
Ilya Gringolts, fiðla
Yura Lee, fiðla
Leonard Elschenbroich, selló
Jakob Koranyi, selló
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó