Tix.is

Um viðburðinn

Margrét Erla Maack kemur til Ísafjarðar með danstíma og fara þeir fram í Studio Dan við Hafnarstræti. Það eru aðeins 12 pláss í hverjum tíma svo við hvetjum ykkur til að tryggja ykkur pláss! Svona er dagskráin og má lesa nánar um hvern tíma fyrir neðan.

Miðvikudagur 3. apríl

19:45-20:45 Magadans

20:45-21.45 Beyoncé - Basics


Fimmtudagur 4. apríl

12-13 Beyoncé-hádegissviti

15:00-16:00 Beyoncé-unglingatími

21-22 Burlesque


Föstudagur 5. apríl

12-13 Bollywood- hádegisfjör

19:30-20:30 - Sexý Floor Work

Tímarnir eru miðaðir að byrjendum en eru þó þannig upp byggðir að fólk með alls kyns dansbakgrunn hefur gaman að þeim. Margrét hefur starfað sem danskennari í 14 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Hún hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn.


Miðvikudagur 3. apríl 

19:45-20:45 Magadans

Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Athugið að tíminn hentar konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir.



Miðvikudagur 3. apríl

20:45-21:45 Beyoncé - Twerk og basics

Þessi tími hentar algjörum byrjendum. Hársveiflur, twerk og almenn skvísulæti í anda poppdrottingarinnar. Í lok tímans lærum við hinn eina sanna Single Ladies. Athugið að tíminn hentar konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.

Fimmtudagur 4. apríl

12-13 Beyoncé-hádegistími

Hvað er betra en að hita upp fyrir helgina með Beyoncé? Orkumikill svitatími þar sem nóg er kennt af sporum í djammveskið. Dansinn sem unnið er með í þessum tíma er við lagið End of Time. Athugið að tíminn hentar konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.


Fimmtudagur 4. apríl

15:00-16:00 Beyoncé-unglingatími

Sjálfsstyrkjandi rassaskvettur og algjört fjör. Í þessum tíma vinnum við með dansinn Formation. Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.


Fimmtudagur 4. apríl

21-22 Burlesque

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Við lærum að finna okkar innri sviðsdívu, förum í sexýí gólftækni, og í lok tímans lærum við brjóstadúskatækni. Allir þátttakendur fá brjóstadúskapar gefins! Námskeiðið er ætlað konum yfir 18 ára.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.


Föstudagur 5. apríl

12-13 Bollywood- hádegistími

Bollywood er indverskur kvikmyndadans þar sem gleðin, litir, hopp og skopp eru alls ráðandi. Seiðandi hreyfingar í bland við mikið úthald! Skemmtilegur, hressandi og öðruvísi svitatími sem hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Athugið að tíminn hentar konum með barn undir belti, ef þær eru ekki með grindargliðnun og eru almennt hraustar.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir.


Smáa og leiðinlega letrið:

Ef ekki næst lágmarksþátttaka (7 í tíma), fellur hann niður en þau sem höfðu keypt miða fá endurgreitt. 

Ekki er hægt að fá tímann endurgreiddan, nema hann falli niður.