Tix.is

Um viðburðinn

SPOR

Sviðslistahópurinn Bíbí & Blaka kynnir verkið SPOR, gagnvirka danssýningu fyrir börn frá 5 aldri.

 

SPOR er könnunarleiðangur þar sem leitað er að galdrinum sem felst i orkunni - kraftinum sem býr i öllu. Áhorfendum er boðið í heim þar sem orkan er allstaðar sjáanleg, heyranleg og snertanleg. Orkan í hafinu, á jörðinni, í geimnum og orkan í okkur sjálfum.

 

Börnin munu fylgja dansandi óbeisluðum orkugjöfum auk þess að kanna undarlegt umhverfið á eigin vegum. Hvaða orka er það sem kviknar í myrkrinu? Erum við orkusugur eða gefum við jafn mikið og við þiggjum?

 

SPOR er unnið í samstarfi við listamenn frá Noregi, Finnlandi, Grænlandi og Færeyjum og mun ferðast og þróast áfram í Grænlandi og Færeyjum.

Verkið er unnið í samstarfi við NAPA og styrkt af Mennta- og menningarmálarráðuneytinu - Leiklistarráði, Listamannalaunum, Nordic Culture Fund og Reykjavíkurborg.

 

 

Höfundar: Bíbí & Blaka

Hönnun innsetningar, leikmuna og búninga: Guðný Hrund Sigurðardóttir

Dans: Tinna Grétarsdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Sólrún Sumarliðadóttir

Flytjendur: Valgerður Rúnarsdóttir & Snædís Lilja Ingadóttir

Aðstoðar sviðsmyndahönnuður: Mao

Aðstoðar búningahönnuður: Alexía Rósa Gylfadóttir

Ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðarson, Mari Agge og Hermann Karl Björnsson

Stuttmynd: Lars Skjelbreia

Framkvæmdastjórn: Aude Busson

Grafísk hönnun: Jóhanna Erla // memm hönnunarstofa

Kvikmyndagerð: Carlo Cupaiolo

Ljósmyndir: Owen Fiene


Bíbí & Blaka  er hópur listamanna sem að vinnur að sviðsverkum fyrir ung börn og aðstandendur þeirra. Hópurinn samanstendur af Tinnu Grétarsdóttur danshöfundi, Sólrúnu Sumarliðadóttur tónskáldi og Guðnýju Hrund Sigurðardóttur sviðshönnuði auk þeirra flytjenda sem að eru í verkunum hverju sinni.

Bíbí & Blaka hefur ferðast víða bæði innanlands sem erlendis og sýnt verk sín í leikskólum, á hátíðum, í menningarhúsum og leikhúsum.

Lengd sýningar: u.þ.b 40 mínútur

Fjölda þátttakenda: 20

 

www.birdandbat.org

Fylgið okkur á Facebook:

Bird&Bat

Spor