Tix.is

Um viðburðinn

Áhrifamikið leikrit um föður Bölungavíkur Einar Guðfinnsson. Ungur að árum hóf Einar útgerð á sexæringi. Hugurinn hans stefndi hátt og áður en yfir lauk hafði hann byggt upp mörg fyrirtæki í útgerð og margþættum rekstri. Hér er á ferðinni kraftmikil leiksýning þar sem róið er á ýmis mið og gjarnan teflt á tæpasta vað.
Höfundar leiksins eru þeir Elfar Logi Hannesson og Rúnar Guðbrandsson. Sá fyrrnefndi er í hlutverki Einars en Rúnar leikstýrir. Höfundur tónlistar er Björn Thoroddsen en lýsingu hannaði Magnús Arnar Sigurðsson. Það er hið vestfirska Kómedíuleikhús sem setur EG á senu og var leikritið sýnt fyrir stappfullu Einarshúsi síðasta sumar en er nú loksins sýnt í borginni.