Tix.is

Um viðburðinn

Tónskáldið og doktorinn Sigvaldi Kaldalóns átti litríka ævi. Hann tók við læknisembætti í einu afskekktasta læknishéraði landsins fyrir vestan. Víst var lífið þar ekki eins og í einföldum söngleik. Þrátt fyrir það samdi Sigvaldi margar af sínum helstu sönglagaperlum á Kaldalónsárunum. Rakin verður þessi litríka saga tónskáldsins fyrir vestan og fluttar helstu perlur hans.

Leikurinn var frumsýndur árið 2013 og naut mikilla vinsælda og snýr nú aftur á senuna. Búast má við að margir fagni endurfundum og nýjum fundum við okkar ástkæra tónskáld Sigvalda Kaldalóns í þessari umtöluðu sýningu. 

Höfundur/Leikari: Elfar Logi Hannesson

Hljóðfæraleikari: Sunna Karen Einarsdóttir

Leikmynd/Búningar: Marsibil G. Kristjánsdóttir

Leikstjórn: Þröstur Leó Gunnarsson