Tix.is

Um viðburðinn


Floni
kemur fram á Uppklappi #5 og flytur öll bestu lög og vinsælustu lögin sín. Floni gaf nýlega út plötuna Floni 2 og er einn allra heitasti tónlistarmaður landsins um þessar mundir.

MIÐASALA HEFST ÞRI. 12. MARS KL. 10 Á TIX.IS
Einungis 100 miðar í boði
Miðaverð kr. 1.990,- en aðeins 1.490,- ef greitt er með Aur

Tónleikarnir fara fram í Lágmúla þann 20. mars kl. 20.30. Húsið opnar kl. 20.

Er aldurstakmark?
Börn undir 14 ára aldri þurfa að vera í fylgd með forrráðarmanni.

-

Uppklapp er ný tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram, með nýjum og persónulegum hætti. Auk þess að flytja sína eigin tónlist sitja þau fyrir svörum og segja okkur meðal annars frá lögunum sem þau hafa valið inn á Tónlistann þá vikuna. Við fáum þannig að skyggnast inn í hugarheim ólíkra listamanna og kynnumst tónlistinni þeirra, um leið og við fáum að vita hvað veitir þeim innblástur og hver uppáhalds lögin þeirra eru.

Inni á Tónlistanum kynnir listafólk einnig sína vinatóna sem viðskiptavinir Nova geta sett upp hjá sér. Vinatónar eru tónar sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig.

Nova elskar tónlist af öllu hjarta og hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að rækta grasrótina hér heima. Allur ágóði af miðasölunni rennur til listamannsins hverju sinni sem og allar tekjur af sölu vinatóna. Með því að mæta í Lágmúlann eða að sækja þér vinatón leggur þú þitt af mörkum og styður við íslenska tónlist. Aðeins 100 miðar eru í boði hverju sinni.