Tix.is

Um viðburðinn

Blandaðu þinn eigin kynjakokteil.


Hönnuðir munu taka höndum saman við Drag-Súg og bjóða gestum í aldingarðveislu á KEX hostel, laugardaginn 30. mars. Við veltum fyrir okkur kyni, kynhegðun og kynbundinni sjálfsmynd með allskonar atriðum, uppákomum og verkum. Sett verður á svið veröld þar sem kynveggir fortíðarinnar eru brotnir niður og sköpunargleðin fær að ráða ríkjum. Miðasala fer fram á tix.is og við hurð. Innifalið í verði er stútfull dagskrá af dragsýningum og spennandi upplifunum.