Tix.is

Um viðburðinn

Fyndnustu mínar og tveir gaurar sem þær þekkja, Vilhelm Neto og Stefán Ingvar, sameina krafta sína á Hard Rock þetta eina kvöld til þess að láta ykkur hlæja þar til þið pissið smá á ykkur!


Fyndnustu mínar er uppistandshópur sem samanstendur af Lóu Björk, Rebecca Scott Lord og Sölku Gullbrá. Þær eru þrjár heitar gellur sem hafa haldið uppistandskvöld við frábærar undirtektir síðastliðið ár.


„Ég er enginn Ari Eldjárn en guð minn góður hvað þær eru fyndnar! Ég hló niður í maga, vá hvað þær eru góðar! Svo ferskt og gott og viðbjóðslega fyndið. AAA JÁ ÞÆR VORU SVO GÓÐAR!!!!“

Steiney Skúladóttir, fræg og heit gella.


Grínsketsar Vilhelm Neto hafa farið eins og stormur um samfélagsmiðla síðustu misseri, en aðdáendur hans ættu ekki að missa af þessari frumraun hans í uppistandi.


Stefán Ingvar hefur vakið mikla lukku með persónulegu og drepfyndnu uppistandi sínu, Skrítlur um sjálfsmorðshugleiðingar, sem fjallar um já, þið giskuðuð á það, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Skrítlur um sjálfsmorðshugleiðingar voru fluttar um víðan völl allt frá Reykjavík til Vestfjarða við frábærar undirtektir.