Tix.is

Um viðburðinn

Það stefnir í bráðskemmtilega vortónleika hjá Karlakór Keflavíkur þann 14. og 15. maí 2019 því kórinn hefur fengið sjálft rokkgoðið Eyþór Inga Gunnlaugsson til liðs við sig og mun hann taka nokkur vel valin lög með kórnum.

Kórinn mun flytja klassísk karlakóralög fyrir hlé og hafa síðan léttleikann ráðandi eftir hlé þar sem kórinn tekur nokkur gömul og ný popplög og endar svo á hressilegu rokki með aðstoð Eyþórs.

Flutt verða lög sem voru gerð vinsæl af eða eru eftir Richard Wagner, Árna Thorsteinsson, Áskel Jónsson, Sigurð Sævarsson, Pál Ísólfsson, Gunnar Þórðarson, Braga Valdimar Skúlason, Mugison, Hjálma, Ásgeir Trausta, Rúnar Júlíusson, Leonard Coen, Queen o.fl.

Fram koma:

Karlakór Keflavíkur með Eyþóri Inga Gunnlaugssyni  

Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson

Píanó: Arnór Vilbergsson

Hljómsveit
Arnór Vilbergsson - Píanó / Hljómborð
Halldór Lárusson - Trommur
Sigurgeir Sigmundsson - Gítar
Þorgils Björgvinsson -?Bassi  

Einsöngur: Kristján Þ. Guðjónsson.


Húsið opnar kl.19:30

Tónleikar hefjast kl 20:30

Miðaverð kr 4.500.