Verðsvæðin eru þrjú sem hér segir:
A+ svæði: 24.990 kr - (ósóttar pantanir)
A svæði: 19.990 kr
B svæði: 14.990 kr
C svæði: 9.990 kr
SJÁ MYND (Gróf teikning sem sýnir stærð svæða með fyrirvara um breytingar.)
Dagskrá dagsins
15:00 - Tix.is opnar miðaafgreiðslu í Höllinni.
18:30 - Húsið opnar
20:00 - Kaleo
20:30 - Hlé
21:00 - Kings of Leon
22:30 - Áætluð lok
Um Kings Of Leon
Hljómsveitin hefur undanfarið verið aðalnúmerið á stærstu tónleikahátíðum heims síðustu ár, meðal annars á Hróarskeldu, Coachella, Glastonbury, Rock Werchter og Lollapalooza. Auk þess hafa þeir haldið fjöldann allan af eigin risatónleikum víða um heim sem jafnan er pakkuppselt á, enda sveitin orðin þekkt fyrir kraftmikla sviðsframkomu og ógleymanlega tónleika.
Sveitin hefur unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal Grammy og BRIT verðlaun. Lög á borð við Use Somebody, Sex on Fire, Closer, Supersoaker, Wait for Me og Radioactive hafa umsvifalaust orðið að samtímaklassík sem flestir þekkja og geta sungið með. Lagalistar síðustu tónleika Kings of Leon hafa haft að geyma vinsælustu lögin af öllum sex plötum hljómsveitarinnar.
Kaleo hitar upp
Það er staðfest að íslenska hljómsveitin sem hitar upp fyrir Kings of Leon er: Kaleo. Þeir skutust upp á stjörnuhiminn á Íslandi árið 2013 og hafa síðan sigrað hug og hjörtu hlustenda um allan heim. Sveitin samdi nýlega við Atlantic Records og búa nú í Austin, Texas þar sem þeir vinna að gerð nýrrar plötu og undirbúa frekari sigra. Tónlist Kaleo er blanda af þjóðlagatónlist, blús, rokki og kántrý og eiga strákarnir eftir að keyra allt í botn til að hita upp áhorfendaskarann í Nýju Höllinni þann 13. ágúst.