Tix.is

Um viðburðinn

Alþjóðlegi jazzdagurinn

Stína Ágústdóttir og Erik Söderlind leika sígild jazzlög

Stína Ágústsdóttir, söngur
Erik Söderlind, gítar
Valdimar Kolbein Sigurjónsson, bassi
Matthías MD Hemstock, trommur

Stína Ágústsdóttir söngkona ætti að vera jazzáhugafólki Íslands kunn en síðasta plata hennar, Jazz á Íslensku sem kom út árið 2017, hefur notið vinsælda. Stína er búsett og starfandi í Stokkhólmi en heldur reglulega tónleika á Íslandi. Í þetta skiptið tekur hún með sér einn af vinsælustu jazzgítarleikurum Svíþjóðar, Erik Söderlind. Stína og Erik munu fagna alþjóðlega jazzdeginum á Múlanum og koma til með að leika þeirra uppáhalds sígildu jazzlög í bland við nýrri verk og mega áhorfendur því búast við einstökum tónleikum þar sem hefðir jazzins verða í hávegum hafðar.