Tix.is

Um viðburðinn

Miðasala hefst í byrjun nóvember 

Brot af því besta með Skoppu og Skrítlu snýr aftur í Hörpu!

Fyrir ári síðan frumsýndu þær vinkonur þessa fimmtán ára afmælissýningu sína. Hún sló heldur betur í gegn og var uppselt á allar sýningarnar og mörg þúsund litlir áhorfendur komu og uppgötvuðu töfra leikhússins í fyrsta sinn.

Næstu sýningar:

21. nóv 2020 – kl. 11, 13 og 15
28.nóv 2020 - kl. 11, 13 og 15

Skoppa og Skrítla eru að sjálfsögðu í fylgd bestu vina sinna, þeirra Lúsíar, Bakara Svakara, Zúmma, rassálfanna og allra hinna en stór hópur ungra og hæfileikaríkra barna bregða sér í hin ýmsu hlutverk og lætur ljós sitt skína.

Sannkölluð gleðihátíð fyrir alla fjölskylduna.

Með helstu hlutverk fara: Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Viktor Már Bjarnason, Vigdís Gunnarsdóttir

Tónlist: Hallur Ingólfsson
Búningar: Gunnhildur Stefánsdóttir

Leikmynd: Ísold Ingvarsdóttir
Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson

Miðaverð kr 3.900 Sýningin er ætluð börnum frá 1 árs aldri og því er greitt fyrir öll börn eldri en 1 árs.