Salur 1 í Bíó Paradís miðvikudag 6. mars kl. 18:00
Manu Delago er einstakur tónlistarmaður frá austurríki sem sérhæfir sig í hang (handpan) trommu og
hefur spilað með þekktum tónlistarmönnum á við Björk og Ólaf Arnalds. Á síðasta ári gaf hann út stutta
kvikmynd og meðfylgjandi plötu sem var öll tekin upp í alpafjöllunum. Í myndinni leiðir Delago sjö manna
teymi tónlistarmanna í ferð um fjöllin og taka þau þar upp frumsamda tónlist hans innan um sláandi
fallega náttúru. Á þessum sérstaka viðburði mun Delago taka á móti gestum með tónleikum, þar á eftir
verður kvikmyndin sýnd og í kjölfarið mun Delago svara spurningum úr sal.
ATH. Ekki verður hægt að nota hátíðarpassa né klippikort á þennan viðburð.