Tix.is

Um viðburðinn

Taka 5 - Frumsýning

Frumsýning á nýrri íslenskri bíómynd eftir Magnús Jónsson. Myndin var að mestu leyti framleidd án
styrkja og var tekin upp á aðeins 9 dögum.

Ungan bónda dreymir um að verða leikari í bíómynd en það vill enginn leika við hann. Fastur í eigin heimi
leikur hann senur úr gömlum bíómyndum við sjálfan sig, allan liðslangan daginn. Dag einn ákveður hann
að láta draum sinn rætast og rænir 5 listamönnum úr borginni. Leikkonu, rithöfundi, tónlistarmanni,
leikstjóra og myndlistarmanni og neyðir þau til að gera bíómynd með sér með gömlu VHS vélinni sinni úti í
hlöðu.


Leikstjóri: Magnús Jónsson

Lengd myndar: 91

Tegund myndir: Svört gamanmynd

Tungumál: Íslenska, enskur texti
 
Sýnd í sal 1 í Bíó Paradís sunnudag 3. mars kl. 20:00


Trailer: https://vimeo.com/314556802