Tix.is

Um viðburðinn

Morgunverðarráðstefna á vegum Samtaka verslunar og þjónustu um viðskiptalegan ávinning fyrirtækja af sjálfbærni.   

Hvar: Grand Hótel Reykjavík

Hvenær: Þriðjudaginn 19. febrúar kl. 8:30-10:00

Aðalerindi: Ávinningur af sjálfbærni? - tækifæri, hagnaður og hagkvæmni 

- Dr. Hafþór Ægir frá Circular Solutions 

Hver er ávinningurinn af sjálfbærni og loftslagsmálum fyrir reksturinn þinn?  
70% af neytendum láta sjálfbærni stýra kauphegðun sinni.  
79% fyrirtækja forgangsraða loftslagsbreytingum þegar horft er á Heimsmarkmið SÞ.  

Hvaða tækifæri eru til staðar fyrir fyrirtæki til að mæta þessum áskorunum, skapa sér samkeppnisforskot, auka virði vörumerkisins, stýra áhættu í virðiskeðjum, birgjamati o.fl.?  

Dr. Hafþór Ægir mun fara yfir helstu tækifæri og möguleika fyrirtækja til þessa að mæta þessum áskorunum, skapa sér samkeppnishæfni og skapa jákvæð áhrif á hina þrískiptu rekstrarafkomu (People, Planet, Profit). Einnig verður farið yfir helstu áhættur sem steðja að fyrirtækjum með alþjóðlegar virðiskeðjur.

Hafþór Ægir er með doktorspróf í verkfræði frá DTU í Danmörku og hefur margra ára reynslu af sjálfbærnimálum og sérhæfingu í sjálfbærni fyrirtækja.  

Hafþór er einn af eigendur CIRCULAR Solutions, en fyrirtækið hefur unnið að sjálfbærniverkefnum með fjölda fyrirtækja, svo sem Marel, VÍS, Reykjavíkurborg og Landsvirkjun.  

CIRCULAR Solutions er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í sjálfbærni fyrirtækja og aðstoðar við að flýta ferlinu í átt að sjálfbærni með betri ákvarðanatöku og beri viðskiptagreind sem skapar virði fyrir fyrirtækið og samfélagið í heild. Að auki starfa hjá fyrirtækinu Bjarni Herrera, forstjóri, Dr. Reynir Smári Atlason, sérfræðingur m.a. í sjálfbærri vöruþróun og Birgir Örn Smárason, sérfræðingur m.a. í sjálfbærum virðiskeðjum í sjávarútvegi. 

  

Erindi úr viðskiptalífinu: Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar 

Gréta María tók við starfi framkvæmdarstjóra Krónunnar 2018 en gengdi stöðu fjármálastjóra Festi 2 ár þar á undan. Hún var forstöðumaður Hagdeildar Arion Banka frá 2010-2016 en þar áður starfaði hún í fjárstýringu, fyrst hjá Sparisjóðabankanum og síðar Seðlabanka Íslands. Á árunum 2005-2007 starfaði Gréta María í upplýsingatækni hjá VKS og Kögun og sinnti þar gæðamálum og ráðgjöf. Gréta María hefur verið stundakennari frá 2010 fyrst við Verkfræðideild Háskóla Íslands og síðar við MPM námið í Háskóla Reykjavíkur.  

Erindi úr viðskiptalífinu: Ina Vikøren, yfirmaður sjálfbærnimála hjá H&M Í Noregi og á Íslandi 

Ina er yfir sjálfbærnimálum hjá H&M í Noregi og á Íslandi. Það er hennar hlutverk að tryggja að H&M í báðum löndum nái metnaðarfullum markmiðum sínum um að vera 100% sjálfbært og endurnýtanlegt, 100% heiðarlegt og að réttindi allra séu jöfn og að H&M sé 100% að leiða þessar breytingar á markaðnum.  

Ina er með meistaragráðu í iðnhagfræði og frumkvöðlafræðum, með áherslu á sjálfbær viðskiptalíkön í hringrásarhagkerfinu. Hún vann áður hjá World Wildlife Fund (WWF), Innovation Norway, norsku umhverfisstofnuninni og sem ráðgjafi í stefnumótun sjálfbærra viðskipta.    

Hún hóf störf hjá H&M haustið 2018 vegna þess, eins og hún segir, að “svo víðfemt fyrirtæki og af þessari stærðargráðu ber ekki bara ábyrgð á því að leiða breytingar í átt að sjálfbærari tísku- og hönnunariðnaði heldur er það einnig frábært tækifæri fyrir það.”