Tix.is

Um viðburðinn

Hjónin Ágúst Ólafsson barítónsöngvari og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja úrval sönglaga frá norðurlöndum í Hannesarholti sunnudaginn 24.febrúar, sem öll eiga það sameiginlegt að fjalla á einn eða annan hátt um ástina.

Flutt verða lög eftir tónskáld á borð við Sibelius, O. Merikanto, Petterson-Berger, Grieg og Alfvén. 

Stuttir og áheyrilegir tónleikar sem upplagt er að sameina sunnudagsbrönsinum í miðbænum.