Tix.is

Um viðburðinn

Vinirnir og söngvaskáldin Svavar Knútur og Kristjana Stefáns blása til tónleika í Hannesarholti laugardaginn 16.febrúar kl.17.  Á tónleikum þeirra ríkir bæði gleði og angurværð ásamt örlitlum fíflagangi og bera þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá Páli Ísólfssyni, auk frumsaminna laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba, ljóðalestri og gamansagna.

Hið músíkalska par heldur tónleika eins og áður sagði í Hljóðbergi í Hannesarholti laugardaginn 16.febrúar kl.17.00.
Miðaverð 3.500 kr. Frítt fyrir börn 14 ára og yngri.

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Þau gáfu út dúettaplötuna Glæður árið 2011 sem er löngu uppseld hjá útgefanda.

Tilvalið að fá sér kvöldmat eftir tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is