Tix.is

Um viðburðinn

Grímur gefur út sína fyrstu plötu, „B.V.O.Y“, í febrúar 2019. Útgáfunni verður fagnað með veglegum tónleikum í Björtuloftum þann 21. febrúar. Á tónleikunum verður platan flutt í heild sinni í bland við óútgefin lög. Tónlist Gríms einkennist af einlægum textum og grípandi laglínum sem heldur hlustandanum við efnið.

Grímur hefur vakið mikla lukku bæði hérlendis og erlendis með tónleikum sínum sem eru þekktir fyrir hugljúfa og góða stemningu. Undanfarin tvö ár hefur hann haldið tónleika víðsvegar um Danmörku og Svíþjóð. Meðal annars á Sofar Sounds, CPH Listening Room, Studenterhuset og Gimli.

Samfélagsmiðlar:
Facebook
Instagram
Soundcloud
Spotify

Umsjón viðburðar – SJÁ Events