Tix.is

Um viðburðinn

Allir syngja saman í Hannesarholti sunnudaginn 24.mars kl.14 undir stjórn tónlistarfólks og textar birtast á tjaldi. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.

Forsöngvarar að þessu sinni er vinkonuhópur sem kallar sig Skotfjelagið. Skotfjelagið kynntist fyrst í kórstarfi hjá Margréti Pálmadóttur fyrir meira en 20 árum og nokkrar þeirra syngja enn með kvennakórnum Vox Feminae. Makar þeirra og börn eru einnig mjög söngelsk og þegar vinahópurinn hittist er ávallt mikið sungið. Skotfélagið og maka skipa þau Björg Helen Andrésdóttir, Guðný Jónsdóttir og Kári Ragnarsson, Hallveig Andrésdóttir og Einar Sigurmundsson, Helga Jóna Óðinsdóttir og Gylfi Ívar Magnússon, Hulda Stefánsdóttir og Sverrir Ólafsson, Sigríður Anna Ellerup og Geir Gunnlaugsson.

Veitingastaðurinn í Hannesarholti er opinn frá kl.11.30 og býður helgardögurð , kaffi, súkkulaði og heimabakað bakkelsi.