Tix.is

Um viðburðinn

Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína fyrstu sóló plötu, ÁRÓRA, í september 2018. Tónlistinni má lýsa sem kraftmikilli blöndu af jazzi, poppi og rokki sem ber keim af nokkurri ævintýramennsku en þó stöðugleika á köflum. Á tónleikunum munu lög af plötunni fá að hljóma auk nokkurra splunkunýrra laga.

Helgi Rúnar Heiðarsson, saxófónn og klarinett
Jóel Pálsson, saxófónn og klarinett
Kjartan Valdemarsson, píanó
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur