Tix.is

Um viðburðinn

Margrét Pálsdóttir og Ársæll Másson stjórna samsöng í Hannesarholt sunnudaginn 10.mars kl.14. Þau fá gesti Hannesarholts til að syngja með sér ýmis ástar- og átthagalög sem allir kunna. Bæði fást þau mikið við tónlist, Margrét stjórnar til dæmis Múltíkúltíkórnum, fjölþjóðlegum sönghópi kvenna, og Ársæll hefur leikið á gítar við ýmis tækifæri og með alls kyns hljómsveitum, svo sem Stórsveit Reykjavíkur og Bítilbræðrum. Eins og vant er verða textar á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.