Tix.is

Um viðburðinn

Brátt líður að Þorra og blásum við því til heljarinnar Þorrablóts með öllu tilheyrandi í Bruggsalnum á Bryggjunni Brugghús. Boðið verður uppá glæsilegt hlaðborð með súrmeti, lambalæri, hangikjöti, síld og gómsætu meðlæti auk heimsklassa skemmtunar. Með veislustjórn 26. janúar fer hin bráðfyndna Saga Garðarsdóttir en 8. & 9. febrúar er það ísdrottningin Anna Svava Knútsdóttir sem tekur í taumana ásamt Helga Björns og hljómsveit.

 

Innifalið í verðinu er fordrykkur, hlaðborð, skemmtidagskrá og tónleikar. (nánir upplýsingar má finna í viðburðinum á Facebook: https://www.facebook.com/events/275326543146842/?__mref=mb

 

Dagskrá er sem hér segir með fyrirvara um smávægilegar breytingar:

19:00 – Fordrykkur í boði hússins

20:00 – Borðhald og formleg dagskrá hefst

22:00 – Tónleikar – Helgi Björns ásamt hljómsveit
23:00 – Formlegri dagskrá lokið – Plötusnúður heldur uppi stemmingu fram eftir kvöldi

 

ATH: Sætaval er frjálst svo mælst er til þess að mæta tímanlega. Hópar geta haft samband til bóka í síma 456-4040 eða á booking@bryggjanbrugghus.is