Tix.is

Um viðburðinn

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari, hollvinir Hannesarholts, halda styrktartónleika í Hljóðbergi Hannesarholts sunnudaginn 3. mars kl.16 sem þau nefna Mozart Meditation. Þau gefa vinnu sína og afrakstur miðasölu rennur alfarið til starfsemi Hannesarholts sjálfseignarstofnunar. Hannesarholt kann þeim alúðarþakkir fyrir stuðninginn.

Efnisskráin er úrval af því fegursta úr verkum Mozarts fyrir píanó og fiðlu, sem flutt voru í tónleikaröðinni Mozartmaraþon á síðastliðnu ári.