Stockfish Film Festival fer fram í fimmta sinn í Bíó Paradís dagana 28. febrúar til 10. mars 2019.
Hátíðin veitir almenningi aðgang að rjómanum af þeim verðlaunakvikmyndum sem eru sýndar á kvikmyndahátíðum erlendis auk þess sem hún stendur fyrir fjölda viðburða sem og heimsóknum erlendra fagaðila í kvikmyndagerð.
Stockfish kvikmyndahátíðin opnar fyrir samtal og samstarf við erlendan kvikmyndaiðnað og er tækifæri fyrir reykvíska áhorfendur að upplifa það besta sem er að gerast í alþjóðlegri kvikmyndagerð í heiminum í dag. Hátíðin er samstarfsverkefni allra fagfélaga í kvikmyndagreinum á Íslandi.
Hátíðarpassi er á 12.900 kr og veitir aðgang að öllum sýningum og viðburðum hátíðarinnar á meðan húsrúm leyfir. Auk þess veitir passinn þér frábæra afslætti hjá samstarfsaðilum okkar á meðan hátíðinni stendur.
Klippikort er á 5.100 kr og veitir aðgang að fjórum sýningum hátíðarinnar.
Stakir miðar eru á 1.600 kr.
Hægt verður að sækja passa og klippikort í Bíó Paradís þegar nær dregur hátíð. Sækja þarf miða í Bíó Paradís fyrir sýningar. Gildir á allar sýningar meðan húsrúm leyfir.
Fylgist með á heimasíðu og Facebook síðu hátíðarinnar;
Facebook.com/stockfishfilmfestival