Verkin sem flutt verða á tónleikunum eru ýmist samin af Berglindi Maríu Tómasdóttur eða Lilju Maríu Ásmundsdóttur og sjá þær báðar um flutninginn auk þess sem dansarinn Inês Zinho Pinheiro kemur fram í einu verki. Verkin eru ýmist fyrir bassaflautu, píanó, hljóðfærið Lokk eða hjóðskúlptúrinn Lurking Creature. Verkin á tónleikunum hafa öll að geyma stutta sögu og verður hljóðfærið Lokkur í eins konar hlutverki sögumanns sem setur sviðið fyrir smásögurnar sem fylgja í kjölfarið.
Berglind María Tómasdóttir, tónskáld og flautuleikari. Á tónleikunum leikur
hún á bassaflautu og hljóðfærið Lokkur
Lilja María Ásmundsdóttir, tónskáld og píanóleikari
Inês Zinho Pinheiro, dansari
Efnisskrá
Lilja María Ásmundsdóttir
Beneath the World Tree, abstrakt tónsögur fyrir Lokk og kassettutæki (2017) 6’
frumflutningur
Flytjandi: Berglind María Tómasdóttir, Lokkur
Lilja María Ásmundsdóttir
Lurking Creature fyrir hljóðskúlptúr,
dansara og raf (2018) 10’
frumflutningur á Íslandi
Flytjandi: Inês Zinho Pinheiro, dansari
Lilja María
Ásmundsdóttir
The Outlines of Their Insides fyrir
píanó og myndefni (2017) 6’
Frumflutningur
Flytjandi:
Lilja María Ásmundsdóttir, píanó
Berglind
María Tómasdóttir
Nýtt verk fyrir píanó og myndefni (2018) 7-10’
frumflutningur
Flytjandi: Lilja María Ásmundsdóttir, píanó