Tix.is

Um viðburðinn


Það er fátt betra en að hefja nýtt ár á því að fá svolítið klassískt rokk í æðar og eyru. Og það er einmitt það sem þunglömbin í Dúndurfréttum ætla að gera á Græna Hattinum 25.janúar næstkomandi. Boðið verður upp á frískandi kokteil af Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple, Uriah Heep of fleiri rokkvinir kíkja eflaust inn á prógrammið hjá þeim. The Beatles, Kansas, Boston og jafnvel enn fleiri. Komið og fagnið nýju ári með ástríku rokki sem leiðir ykkur án efa inn í hamingjuríkt kvöld.