Tix.is

Um viðburðinn

Í ljósi stöðugra frétta af lotfslagsbreytingum, pólitísku umróti og öðrum hamförum af manna völdum er skýrara en nokkurn tímann áður að status quo er ekki lengur valmöguleiki. Og þar sem við viljum ekki fara niður … er þá ekki bara eina leiðin upp?

DesignTalks er einstakur viðburður sem áhugafólk um nýjustu strauma og stefnur í hönnun og arkitektúr lætur ekki framhjá sér fara. Fyrirlestradeginum er ætlað að veita áhrifafólki í viðskiptum, stjórnvöldum, almenningi og hönnuðum innblástur til samstarfs og framfara.

DesignTalks 2019 fagnar framúrskarandi fólki sem tekur þátt í mótun betri framtíðar með verkefnum sem víkka mörk þess mögulega.

Fyrstu fyrirlesararnir sem kynntir eru á DesignTalks 2019:

Kristian Edwards er arkitekt og innanhússarkitekt hjá hinni margverðlaunuðu arkitektastofu Snøhetta. Kristian hefur tekið þátt í byltingarkenndum verkefnum á sviði sjálfbærni með rannsóknarsetri ZEB og er lykilmaður í nýjasta verkefni Snøhetta, Svart, sem er fyrsta bygging á norðurhveli jarðar sem býr til meira rafmagn en hún notar!

Philip Fimmano, tísku- og lífstílssérfræðingur er náin samstarfsmaður hinnar margrómuðu Lidewij Edelkoort, en þau stofnuðu saman Talking Textiles, sem er vettvangur um vitundarvakningu og nýsköpun í textíl. Philip skrifar fyrir Trend Tablet  auk annarra útgáfa og fjallar einnig reglulega um hnattræna þróun sjálfbærni og virðingu fyrir jörðinni, með sýningum víða um heim.

Lara Lesmes og Fredrik Hellberg reka Space Popular, þverfaglega hönnunar- og rannsóknarstofu, sem hefur hannað byggingar í Asíu og Evrópu og tekið þátt í alþjóðlegum samkeppnum. Þau voru nýlega tilnefnd nýliðar til að fylgjast með og nýjasta verkefni þeirra, Value in the Virtual veltir upp spurningum um hvernig sýndarveruleiki muni breyta byggingum, í raunveruleikanum og hinum stafræna heimi.

Viltu vera samferða?

DesignTalks er skipulagður af Hönnunarmiðstöð Íslands með stuðningi frá Arion banka og Reykjavíkurborg.