Salsakommúnan blæs til funheitrar þrettándabrennu í formi dansleiks í Félagsheimili Seltjarnarness laugardalskvöldið 5. janúar. Leikin verða lög af breiðskífu sveitarinnar „Rok í Reykjavík" sem kom út á liðnu ári auk nýrra laga í bland við aðra valinkunna salsaslagara. Áður sveitin stígur á svið verður boðið uppá salsadanskennslu og hvetjum við gesti til þess að nýta sér hana til að liðka mjaðmirnar og sletta úr klaufunum.
Miðaverð er 2000 kr. en 1000 kr. fyrir námsmenn og eldri borgara.
Salsakommúnan er hljómsveit sem leikur kröftuga, dansvæna tónlist undir áhrifum frá tónlistarhefðum Suður-Ameríku. Stofnun sveitarinnar átti sér langan aðdraganda en var almennilega hrint af stað haustið 2016. Síðan þá hefur hún gefið út smáskífur, leikið á tónleikum og gaf í vor út sína fyrstu breiðskífu „Rok í Reykjavík" . Allir textar sveitarinnar eru frumsamdir og á íslensku sem færir tónlist af þessu tagi nær íslenskum áheyrendum. Um leið eru textasmíðarnar undir áhrifum töfraraunsæisins, sem einkennir bókmenntir Suður-Ameríku, í bland við íslenskan veruleika og er með þessu móti leitast við að etja saman þessum ólíku menningarheimum á nýstárlegan hátt.
Plötuna „Rok í Reykjavík" má nálgast hér