Tix.is

Um viðburðinn

Hommar og lesbíur lifðu í þögn og ótta langt fram á síðustu öld. Örlagaríkt viðtal í tímaritinu Samúel 1975 við Hörð Torfason um kynhneigð hans hratt af stað ófyrirsjáanlegri atburðarás og markar upphaf réttindabaráttu homma og lesbía á Íslandi. Svona fólk fyrri hluti rekur aðstæður og upphaf þessarar baráttu fram til 1985, sögur fólks sem daglega tókst á við ríkjandi gildismat og fordóma í von um að gera Ísland byggilegt fyrir sig og sína.

Svona Fólk (fyrri hluti 1970-1985) verður frumsýnd 28. nóvember.
Íslenskt tal, enginn texti.