Tix.is

Um viðburðinn

Í vetur heldur Snorri Sigfús Birgisson þrenna tónleika í Hannesarholti og flytur drjúgan hluta þeirra tónverka sem hann hefur samið fyrir píanó (17. nóv., 9. des. og 19. jan.). Um er að ræða einleiksverk en einnig kom Anna Guðný Guðmundsdóttir til liðs við Snorra 9. desember og lék með honum þau tónverk sem hann hefur samið fyrir píanó fjór-hent. Elsta verkið er frá 1975 en hin yngstu eru samin á þessu ári (2018) og hafa ekki heyrst áður .
Flest verkin eru frumsamin en einnig verða leiknar þjóðlagaútsetningar.

Snorri er fæddur 1954 og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1974. Hann hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim að loknu framhaldsnámi erlendis (1980).
Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. Hann er félagi í CAPUT hópnum.

Píanótónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson
Program C

Píanó: Snorri S. Birgisson

Portrett nr. 5 (1998)

Æfingar (TAROT) - (1980 - 1981)

Portrett nr. 7 (1998)