Tix.is

Um viðburðinn

Ath. upphafsstaður sýningarinnar verður tilkynntur síðar.

Nocturne, eða Næturljóð, er í senn sviðsetning, göngutúr og leiksmiðja. Verkið eróður til næturinnar og lífveranna sem búa í nóttinni og í jaðri borgarsamfélagsins.
Áhorfendum er boðið að hverfa inn í myrkviði Reykjavíkur, laumast inn á milli steypu og rafmagns, götuljósa og matvöruverslana, í leit að einhverju öðru.
Skuggar og gróður leiða okkur á undarlegan og lítt þekktan stað, sýn okkar álandslag borgarinnar tekur smám saman að breytast ...

Verkið er samvinnuverkefni lettnesku listakonunnar Kristu Burane og Andy Field frá Bretlandi. Lettneski leikmyndahönnuðurinn Ieva Kaulina sér um útlitsýningarinnar og sænski danshöfundurinn Erik Eriksson um hreyfingar.Nocturne er afrakstur listamannadvalar þeirra í Reykjavík vorið 2018 þar sem þau lögðu sérstaka áherslu á að kynna sér náttúrufar og dýralíf borgarinnar í sinni fjölbreytilegustu mynd. Listamennirnir dvöldu einnig í London og Riga og var verkið sniðið sérstaklega að aðstæðum hverju sinni.

Leikstjórar: Krista Burane og Andy Field
Samverkafólk: Ieva Kaulina og Erik Eriksson
Dansarar: Klavs Liepins, Rósa Ómarsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir og Daniella Eriksson
Framleiðendur: London International Festival of Theatre, Lókal Performing Arts Reykjavík og Homo Novus, Riga. Nocturne er hluti af verkefninu „Urban Heat“ sem er á vegum tengslanetsins Festivals In Transition og nýtur stuðningsMenningaráætlunar Evrópusambandsins, Creative Europe.

Fyrir frekari upplýsingar: http://www.spectacular.is/nocturne-isl

Everybody's Spectacular