Tix.is

Um viðburðinn

Engir eru þeir æsingamenn, Kristján Edelstein gítarleikari, Atli Övarsson tónskáld og píanóleikari, og Eyþór Ingi Jónsson, kórstjóri og organisti. 

Saman leika þeir með Hymnodiu á jólatónleikum kórsins sem að venju verða að kvöldi 22. desember, rétt fyrir jól, þegar kominn er tími til að slaka á og láta jólakyrrðina streyma um æðar sér. Á þessum nótum verða tónleikarnir að þessu sinni, kyrrir, rólegir, íhugulir og seiðandi. 

Komið og upplifið sannan jólaanda með Hymnodiu og þessum frábæru hljóðfæraleikurum í Akureyrarkirkju 22. desember kl. 21.