Tix.is

Um viðburðinn

DANA MICHEL: Mercurial George

Í verkinu Mercurial George er einfeldnin tekin fyrir og snúið upp á hana þannig að óþægilegar kenndir vakna með áhorfandanum. Dana Michel leggur út í menningarlegan fornleifauppgröft, rótar í haugi af rykugum vísbendingum sem setja dansarann úr jafnvægi. Í þessu sólói er líkaminn því líkt og tvístígandi, um leið og linnulausar tilraunir eru gerðar til þess að ná fótfestu og jafnvægi á ný. Hinar minimalísku og afbyggjandi hreyfingar Dönu Michel gera það að verkum að hún tekur smám saman að grafa upp og grandskoða sína eigin persónu.

Danshöfundurinn Dana Michel (f. í Ottawa) er búsett í Montreal. Hún var komin undir þrítugt þegar hún útskrifaðist sem samtímadansari frá Concordia University árið 2005, en hafði fram að því starfað sem markaðsstjóri, hlaupari og ruðningsleikmaður. Fyrsta dansverk hennar í fullri lengd var Yellow Towel, sem valið var eitt af dansverkum ársins 2013 af dagblaðinu Voir í Montreal og Dance Current Magazine. Árið 2014 hlaut Dana viðurkenningu á danshátíðinni ImPulstanz í Vín fyrir frábæran listrænan árangur og var einn af athyglisverðustu danshöfundum þess árs á lista New York Times. Mercurial George er hennar nýjasta verk. Það var frumsýnt á Festival TransAmériques í Montreal sumarið 2016 og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.

Dana Michel hlaut Silfurljónið á Feneyjatvíæringnum 2017 fyrir frumsköpun í dansi.


–––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––––

Höfundur og dansari: Dana Michel

Ljósahönnun og tæknistjórn: Karine Gauthier

Listræn : Martin Bélanger, Peter James, Mathieu Léger, Roscoe Michel, Yoan Sorin

Ráðgjafi v. hljóðhönnun: David Drury

Framleiðandi: Dana Michel

Framkvæmdastjórn: Daniel Léveillé Danse

Meðframleiðendur: Festival TransAmériques (Montréal), Tanz im August (Berlin), CDC Atelier de Paris-Carolyn Carlson (Paris), ImPulsTanz (Vienna), Chapter Arts (Cardiff)

Listamannadvöl: Usine C (Montréal), Dancemakers (Toronto), ImPulsTanz (Vienna), Actoral/La Friche Belle de Mai (Marseille), WOOP (Douarnenez), CDC Atelier de Paris-Carolyn Carlson (Paris), M.A.I. (Montréal)

Með stuðningi frá: Conseil des Arts et des Lettres du Québec, Canada Council for the Arts.

Ljósmynd: Jocelyn Michel

Frekari upplýsingar: http://www.dana-michel.com