Tix.is

Um viðburðinn

Listskautahópurinn Le Patin Libre frá Kanada mun halda sýninguna GLIDE í Skautahöllinni í Laugardal laugardaginn 1.desember klukkan 17:30- 18:30

Hópurinn hefur ferðast með sýninguna til fjögurra heimsálfa og fengið mjög góðar móttökur gagnrýnenda. Stíllinn er nútímalegur og er sýningin blanda af þeirra bestu atriðum.

Meðlimir hópsins eru Taylor Dilley, Jasmin Boivin, Pascale Jodoin, Alexandre Hamel og Samory Ba.