Tix.is

Um viðburðinn
Þann 14.desember ætla jólagrísirnir í FM Belfast að bjóða upp á Litlu jólin á Hard Rock Café. 

Í boði verður eróbikmessa að hætti hússins, einstök stemning og friður á jörðu. 

FM Belfast er sjaldséður hvítur hrafn og því væri óvitlaust að nýta tækifærið, slökkva á sjónvarpinu, setja símann í vasann og eiga ógleymanlega stund í vinalegum faðmi. 

Svitnum saman, gleðjumst, gaman.

Engar aðrar en The Post Perfomance Blues Band munu hita upp!