Tix.is

Um viðburðinn

Það hringja ábyggilega nokkrar bjöllur þegar nafnið Kerri Chandler kemur upp í hausnum. Kerri er einn frægasti hús plötusnúður og tónlistarmaður sem hefur ráfað um þennan hnött. Flest allir þeir sem hafa einhvern áhuga á raftónlist vita hvað Kerri hafði mikil áhrif á hvernig taftónlist er í dag. Hann er frumkvöðull og breytti senunni með sál í hústónlistinni og spilar yfirleitt lifandi yfir settinn sín á hljómborði. Kerri var ljósgeisli jaðarsenu New York og New Jersey og kom jaðartónlistinni beint upp á yfirborðið og er ennþá daginn í dag að spila á öllum stærstu hátíðum í heimi.


Kerri hefur lokað tónlistarhátíðinni Secret Solstice þrisvar sinnum. Hann hefur þó ekki stigið inn í næturklúbba Reykjavíkur í mjög langann tíma síðan Thomsen hét og var. Það er með miklu stolti og ánægju að bjóða núna upp á Kerri Chandler á Vintage Box í bland við það besta frá Íslandi.


Báðar hæðir verða teknar yfir þetta kvöld og dagskráinn ekki að verri endanum með rjóma úr Íslensku næturlífi í bland við Kerri Chandler. Það er skorað á þig að mæta og sýna bæði senu Íslands stuðning og taka á móti þessum listamanni með stæl. Sjáumst vonandi 2. nóvember.


Fram koma:

Kerri Chandler

Askell

Formadurinn

Ezeo

Yamaho

Tommi White

KES

Masi

Cyppie


Takmarkað magn á miðum til sölu! Skorað á þig að mæta í búning!