Tix.is

Um viðburðinn

Fertugustu og fyrstu Jólasöngvarnir eru nú haldnir í Langholtskirkju dagana 15. og 16. desember. Kór Langholtskirkju, Gradualekór Langholtskirkju og Graduale Nobili munu koma fram ásamt einvala liði hljóðfæraleikara, undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista við Langholtskirkju ásamt Þorvaldi Erni Davíðssyni. Einsöngvarar í ár eru þau Hallveig Rúnarsdóttir og Oddur Arnþór Jónsson.

15.desember kl. 20
16.desember kl. 17

Fyrstu jólasöngvarnir voru haldnir í Landakotskirkju 1978 en fyrstu tónleikarnir í Langholtskirkju voru haldnir í kirkjuskipinu 1980 áður en gler var komið í kirkjuna, í tíu stiga frosti og ganga í minningunni undir heitinu „vettlingatónleikarnir“. Þá skapaðist sú hefð að gefa tónleikagestum jólasúkkulaði og piparkökur í hléi til að ylja sér.

Félagar Listafélags Langholtskirkju, eldri borgarar, öryrkjar og námsmenn fá 30% afslátt af hverjum miða. Hafið samband við miðasölu Tix varðandi afslátt í síma 551 3800, opið er alla virka daga frá 9-16.