Tix.is

Um viðburðinn

Enn og aftur jól

Hinar einu sönnu Dúkkulísur ætla að endurtaka leikinn og halda jólatónleika í
ár! Eins og allir vita er ekki hægt að halda jól án Pálma Gunnarssonar sem
verður heiðursgestur tónleikanna. Dúkkulísurnar láta sér það ekki nægja heldur
kynna þær einnig glænýja jólaplötu til sögunnar. Gömlu góðu jólalögin verða
líka rifjuð upp og að sjálfsögðu nóg af rokki - Pamela í Dallas rokk og ról!


Tónleikarnir verða á eftirfarandi stöðum:
1. desember (laugardagur) – Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum
5. desember (miðvikudagur) – Bæjarbíó, Hafnarfirði
6. desember (fimmtudagur) – Græni Hatturinn


Tónleikarnir hefjast kl 21:00 og húsið opnar 20:00 (20:30)