Tix.is

Um viðburðinn

Lúðrasveitin Svanur blæs til stórviðburðar! Kvikmynda- og tónlistarunnendur eiga gott í vændum þann 17da nóvember næstkomandi. Hin stórkostlega mynd Buster Keaton, Hershöfðinginn/The General verður sýnd í nýrri staðfærðri útgáfu í Norðurljósasal Hörpu við lifandi undirleik Svansins. Tónlistin er glæný - eftir Davíð Þór Jónsson, unnin í samvinnu við Bjarna Frímann Bjarnason. Þeir félagar munu einnig taka þátt í frumflutningnum ásamt Svaninum. Þetta er sprengifimur kokteill sem enginn má missa af: Svanurinn - Davíð Þór - Bjarni Frímann - ódauðleg kvikmyndaklassík - ný íslensk tónlist! Frumflutningur sem við hlökkum til að njóta með þér.