Tix.is

Um viðburðinn

Meistari Jakob er frumraun Jakobs Birgissonar í uppistandi. Þá getur brugðið til beggja vona og það er vonandi að ekki fari allt á versta veg.

Jakob stendur á krossgötum í lífinu. Hann er tvítugur, nýbyrjaður í háskóla og foreldrar hans fluttir vestur yfir haf.Í þessari sýningu reifar hann helstu hversdagsáhyggjur sínar og leggst jafnvel svo lágt að blanda sér í almennt dægurþras Íslendinga, svo sem um strákana okkar, bankamenn og stjórnmálin. En undir einföldu og gleðilegu yfirborði krauma áleitnar spurningar. Æskuminningar sækja á og þær reynist sífellt erfiðara að bæla niður. Þetta kallar á uppgjör og er Hard Rock prýðilegur vettvangur til þess


Að uppistandinu loknu verður partý og munu Joey Christ og Sturla Atlas taka nokkur lög.

Upphitunaratriði verður tilkynnt síðar.

Miðinn kostar 1200 kr.

Sjáumst föstudaginn 26. október klukkan 22:00.