Bogomil Font, Elín Harpa, Guðlaug Ólafsdóttir, KK, Kristjana Stefánsdóttir, María Magnúsdóttir, Ragnheiður Gröndal, Rakel Sigurðadóttir, Sigga Eyrún, Unnur Sara Eldjárn, söngur
Karl Olgeirsson, píanó og söngur
Ásgeir J. Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
ásamt
Snorri Sigurðarson, trompet
Haukur Gröndal, saxófónn
Jóel Pálsson, saxófónn
Karl Olgeirsson er að gefa út plötuna Mitt bláa hjarta sem inniheldur 14 nýja jazzsöngva og því tilefni verða haldnir útgáfutónleikar á Múlanum. Auk hljóðritana fást lögin í nótnabók. Sannkölluð tónlistarveisla þar sem spriklandi nýr jazz verður framreiddur við kertaljós í hinum fallegu Björtuloftum í Hörpu.