Tix.is

Um viðburðinn

Verið hjartanlega velkomin í kröftugt vinyasa yogaflæði í Om setrinu þar sem við munum stunda hugleiðslu á hreyfingu með aðstoð tónlistar. Við byggjum upp hita og liðleika í líkamanum og tökum svo extra langa slökun með aðstoð heilandi tóna kristalskála. Þetta er fullkomin leið til að flæða inn í helgina. Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að auka blóðflæðið og tengjast betur inn á við í gegnum vinyasa flæðið.

Kakó vinyasa kostar 3000 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Om setrið er á Hafnarbraut 6 í Njarðvík.

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Hér má lesa nánar um kakó.

Kakó vinyasa leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil. Hér má lesa meira um Kamillu.