Tix.is

Um viðburðinn

Verið hjartanlega velkomin í kakó nidra þar sem við hlöðum okkur eftir vinnuvikuna með þægilegum sitjandi æfingum, öndunaræfingum og yoga nidra, svokölluðum jógískum svefn. Við drekkum 100% hreint kakó frá Guatemala til að dýpka slökun og tengingu inn á við.

Með iðkun yoga nidra er hægt að ná mjög djúpri slökun með fullri vitund, á dásamlegum stað á milli svefns og vöku. Þegar undirvitund okkar nær að aðskilja sig frá svefnástandi og ytri aðstæðum verður hún mjög kraftmikil og þar geta breytingar orðið. Yoga nidra getur losað um líkamlega, andlega og tilfinningalega spennu. Einn klukkutími af yoga nidra veitir hvíld á við fjögurra tíma svefn. Yoga nidra hefur meðal annars reynst vel í að draga úr streitu og bæta svefn.

Kakó nidra kostar 2500 krónur. Takmarkað pláss er í boði og því nauðsynlegt að kaupa miða fyrirfram. Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband í gegnum tölvupóst á kamilla@kako.is. Ljósheimar eru í Borgartúni 3, 3. hæð.

Kakóið sem við drekkum frá regnskógum Guatemala er svokallað “ceremonial grade cacao” og sannkölluð ofurfæða. Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Hér má lesa nánar um kakó.

Kakó nidra leiðir Kamilla Ingibergsdóttir yogakennari en hún hefur stundað yoga og hugleiðslu um árabil. Hér má lesa meira um Kamillu.